Indexmedica
Fair Play Certificate ISO Certificate Solida Firma Certificate

Install Flash player

Hafa samband meira

We speak english
+48 668 66 33 99

Skype:My status

helpdesk@indexmedica.eu

Ábyrgðarskilmálar

  • Allir viðskiptavinir fá þriggja ára ábyrgð á fyllingum (fyrir utan fyllingar í tannhálsi, á þeim er eins árs ábyrgð) og tanngervum smíðuðum á stofunni okkar – brúm, krónum, skrúfum, grindum (fyrir utan bráðabirgðaparta sem eyðast að sjálfsdáðum og akrýlparta).

  • Við gefum fimm til tíu ára ábyrgð fyrir meðferð með tannplöntum, eftir því hvaða efni (kerfi) voru notuð:
    Nobel Biocare®, DIO Implant System, Swiss Implant Systems SGS 10 og 3i® 5 ár (Ábyrgðin gildir fyrir efnisgalla án kostnaðar á meðferð í beini og tannholdi. Slíkar aðgerðir geta verið nauðsynlegar vegna ófyrirsjáanlegra viðbragða líkamans eftir ísetningu tannplanta.)

  • Eins árs ábyrgð á spelkum og akrýl tanngervum.

  • Ábyrgðin gildir frá því að allri meðferð er lokið og ef komið er reglulega í skoðun (á 6 – 12 mánaða fresti). Í skoðun eru tennurnar hreinsaðar af reyndum tanntæknum og tannlæknir skoðar tennurnar.
    Ábyrgðin getur verið skert ef vandamál eru tengd mjög slæmri tannhirðu sem stafar af viljandi vanrækslu sjúklings og ef ekki hefur verið farið eftir fyrirmælum tanntækna.

 

 
 
DevaGroupServus-Comp
 
Indexmedica on Facebook
  • Facebook